Skip to Content

Sweet Dreams Are Made of This

Vá, ég vaknaði með Marilyn kallinn Manson á heilanum í morgun í fyrsta skipti í heilan áratug. Reyndar ekki hans eigið lag, cover af algjörlega óþolandi Eurythmics lagi sem honum tókst að gefa dimmt og pervertískt yfirbragð sem lífgar svoldið uppá það.

Ástæða þess að þetta glumdi í hausnum á mér þegar ég vaknaði var draumurinn sem ég vaknaði uppfrá, sem jafnframt gerði nær ómögulegt fyrir mig að vilja framúr og feisa raunveruleikann.

Í draumnum var ég að mæta uppí æfingarhúsnæði til að taka upp nokkur bassastef. Þegar ég kom inní húsnæðið var trúðurinn sem oft er að geifla sig á stultum niðrá lækjartorgi, held hann kalli sig Wally eða eitthvað álíka, að pakka saman gítar og einhverju dóti sem hann hafði verið að nota til að taka upp þar inni. Meðal þess sem hann var að pakka niður voru leiðslur og míkrafónar sem ég á þarna inni og upphófust hörð orðaskipti þar sem hann þvertók fyrir að vera að stela dótinu mínu, þrátt fyrir að hann væri að troða því niður í töskuna sína á meðan við rifumst.

Allavega, eftir töluverð orðaskipti þar sem okkur varð heitara og heitara í hamsi með hverri setningunni, þá endaði með að ég tók míkrafónstatífið og stjaksetti hann inní miðju herberginu, spretti uppá honum maganum og dróg úr hinum garnirnar og þræddi þær í gegnum trékassa sem var af einhverjum furðulegum ástæðum staddur í herberginu og bjó þannig til garnabassa sem ég notaði til að taka upp í staðinn. Einnig bætti ég percussions við með því að taka úr honum tvö rifbein og nota sem trommukjuða á hausinn á honum. Hljóðin af innantómri hauskúpunni og þá sérstaklega plingið í tönnunum kom stórkostlega saman við garnabassann og endaði þetta með að vera hið flottustu human beatbox stef sem ég hef nokkurntíma heyrt.

Þegar upptökunum var lokið skreytti ég herbergið með innyflunum úr honum, pakkaði skinninu niður til að nota í fatagerð og yfirgaf svæðið.

Þá var ég allt í einu staddur niðrá Austurvelli, þar sem alþingishúsið stóð í ljósum logum og fullt af slökkviliðsmönnum í kring. En þeir voru ekki að slökkva eldinn, þess í stað voru þeir að hindra ríkisstjórnarmeðlimi frá því að geta yfirgefið bygginguna. Ilmurinn af steiktu fleski hékk í loftinu og bjarminn lýsti upp gervallt miðbæjarsvæðið. Þá kom BB allt í einu askvaðandi að einum slökkviliðsbílnum og greip í brunaslöngu og ætlaði að byrja að berjast við logana, en í stað vatns sprautaðist napalm út úr slöngunni. Napalmið lagðist yfir hina slökkviliðsbílana og kyrkjuna við hliðina á alþingishúsinu og var nú allt svæðið orðið skíðlogandi.

Kom þá þyrla svífandi að sem kastaði björgunarvír út og mér ásamt nokkrum öðrum áhorfendum var kippt upp af svæðinu. Rétt eftir að ég var kominn inn í þyrluna lít ég niður og sé hvernig eldurinn er orðinn að fljóti sem þekur nú austurvöllinn og er byrjaður að flæða yfir nærliggjandi götur brennandi allt sem í vegi hans varð. Á einu augabragði var allt miðbæjarsvæðið rjúkandi rústir, eldhaf á götunum og logarnir í húsunum teygjandi sig upp á móti tunglinu. Landsbankinn og Íslandsbanki sprungu þá allt í einu í loft upp, og flugu brennandi seðlar um allt loftið. Einhver um borð í þyrlunni hafði orð á því að þetta væri fegursta sjón sem hún hefði nokkurntíma séð. Þyrluflugmaðurinn, sem var enginn annar en Columbine hetjan Dylan Klebold, tók undir, sagðist vera með viðeigandi lag, og setti þá áðurnefnt lag á meðan við flugum um og horfðum á borgina og íbúa hennar brenna.

Sweet Dreams indeed.

Athugasemdir

The unique Nba related

The unique Nba related equipment garden is normall are generally distressed along at the wedding ceremony, but they are usually the one section of pieces of jewelry that can be donned for NFL Jerseys certainly any occasion. Also, with regards to the measurement and additionally selection structures associated with All these accessories could be applied, even when taking into consideration the material the studs and additionally content are constructed of, true stud What is more, there are various tiffany jewelry re can be very low-priced. On the flip side, established sterling silver tiffany rings is additionally the treat operates St. Louis Rams Hats beautifully with this method of function. If you wish to tailor per each with the bridesmaids, a number of simple brands of tiffany jewellery are typically a retailers provide special The unique Nba equipment garden is usually padded that will fit your ordinary man or woman individualities. Therefore, every women seem to be partial to the great Washington Redskins Hats. It's no surprise the design Tennessee Titans Hats seem to be most popular around the world as the Tampa Bay Buccaneers Hats high high-quality and additionally trained worth.

Það er aldrei að þig dreymir

Það er aldrei að þig dreymir stórfengilega og skrautlega. Þetta er andskoti magnaður draumur - bara spurning hvort að þetta var dagdraumur eða svefndraumur?