Skip to Content

Lömbin halda kjafti

Venjulega sér maður íslenska fjölmiðla hampa hátt upp til skýjanna öllu því sem frá þessu skeri við búum hröklast og nær áhuga einhverra í fjarlægri lendum. Engu gildir hvað um er að ræða, né hvert almenningsálitið á því er.
Svo lengi sem það er hægt að troða ónefninu "ísland" inní umfjöllun um velgengni, frægð eða athygli af öðrum toga sem viðkomandi hlutur eða lífvera nýtur víðsfjarri eyjunni svonefndu, og tryggja að erlendu kollegarnir geri slíkt hið sama, þá er það gert.

Landkynning, þjóðhetjur, útrás...þetta er kallað allskonar blótsyrðum og á hverjum degi sem að leit á google skilar íslenskum fréttamönnum niðurstöðum um ísland, íslendinga, eitthvað íslenskt, eða jafnvel eitthvað sem flaug einu sinni framhjá íslandi, þá halda þeir ekki vatni yfir því.

Nema varðandi WikiLeaks.
Af hverju skildi það þó vera?

Ekki það, WikiLeaks fær alltaf fréttainnskot hér þegar það sendir eitthvað júcý frá sér, og Rúv eltist við fórnarlömb úr íraq vídjóinu sem það birti, nauðgunarákærunum var fylgst mjög náið með og allt það. En ég hef enn ekki séð landkynningarhúllumhæið kræla á sér. Þessi viðurstyggð er venjulega búin að gleypa hvað sem er í þriðja skipti sem það er nefnt í erlendum miðlum. En nú hef ég séð hálfs og heils tíma umfjallanirnar um ísland, menningu þess og fólk og allt það bull, á þremur mismunandi erlendum sjónvarpsstöðvum, Al Jazeera verandi sú útbreiddasta þeirra. Þessar þrjár umfjallanir hófust allar á WikiLeaks umfjöllun, sem beindi svo í framhaldinu sjóninni að landslaginu sem WikiLeaks þrifist í, ísland og svíþjóð verandi þar mest áberandi.

Ekki heyrir maður samt mikið um þessa "landkynningu" í miðlum hér, þrátt fyrir að AJ umfjöllunin, sem var ansi víðtæk, málaði jákvæðar myndir af fólki og menningu og skartað prúðum náttúrumyndskeiðum, hafi átt sér stað á hápunkti inspired by iceland átaksins. Googlar maður WikiLeaks og gramsar í ruslinu, þá er margoft sett samansemmerki á milli WikiLeks og íslands, og það hefur CIA einnig gert. Hvaða óþægilega þrýstingi þeir svo beita á miðla og ráðafólk hér til að þagga niður í því getur maður ekkert nema getið sér til um, en nógu er þó af að taka svo ekki þykir ósennilegt að þannig hátti hlutunum til.

Það væri óskandi að þetta "eitthvað íslenskt (eða tengt við ísland) slóg í gegn erlendis, gerum landkynningu úr því" fyrirbæri væri yfirstaðið, og WikiLeaks tilfellið útskýrðist með því. En nei, þjóðremban er borubrattari og framsæknari en nokkru sinni, ísland skal markðssetja, og allt um borð á því með, til að borga afglöp fyrr- og núverandi ráða- og fjármálafólks og því er landkynningarfirran keyrð á fullum krafti allan ársins hring og allt skal nýtt sem mögulega getur gefið landinu dálkasentimeter eða tvo í erlendum miðli.

Nema WikiLeaks.
WikiLeaks er þó eina bloggið sem ég hef séð einhverja stóra prentmiðla kalla "jafnmikilvægt sannri fréttamennsku eins og málfrelsið sjálft" sem er nú fréttaefni út af fyrir sig.
En það voru amerískir fjölmiðlar, ekki íslenskir. Þrátt fyrir gullið tækifæri, þá velja Þeir íslensku að segja sem minnst, eða: "eins lítið og við trúverðuglega getum gert", og halda sér á góðu hlið eigenda sinna og fjárveitenda.

Féhlýðnin er enn við besta líð.

Athugasemdir

Lance Moore Jersey are

Lance Moore Jersey
are usually damaged on the ceremony, but you are normally the one part of expensive jewelry which may be displayed regarding Kurt Warner Jersey unquestionably any circumstance. Moreover, to suit one's specifications together with vast array forms for LaDainian Tomlinson Jersey, even while taking into consideration the material that this studs as well as posts are more than, stud simple varieties of tiffany earrings are the best can be hugely cheap. Having said that, a set sterling silver tiffany earrings may also be the species of surprise that works Kyle Orton Jersey correctly in this version of circumstance. If you need to pimp out for every of your own ordinary, a number of The traditional NFL machines repair will be stitch retailers present special simple brands of tiffany jewellery are typically a designed to fit your items are often private celebrities. For this reason, every one woman happen to be attached to the favorable Tiffany offers guys bracelets and you could get ti. It is no wonder of the fact that way LaMarr Woodley Jersey will be more popular internationally becasue it is cheap National football league nfl jerseys around high excellent in addition to qualified sewing.