Skip to Content

Brennið þið kyrkjur krosslafs draugs

Þá er víst búið að upplýsa hver stóðu á bak við áramótabrennuna í Krýsuvík, sem fjarlægði einn stærsta skammarpunkt svæðisins á sama tíma. Þar á ég við hina margbölvuðu Krýsuvíkurkyrkju, sem líkt og aðrar slíkar byggingar eru ekkert nema rándýr eldiviður sem hefur verið rændur sínum sanna tilgangi til að nýta sem reðurtákn fyrir undirokun, karlaveldi og, miðað við uppljóstranir undanfarinna ára, barnanauðganir.
Líður þá ekki að löngu áður en einhver fjölmiðill mun nafngreina þessa einstaklinga, sennilegast DV miðað við gefna reynslu, og má þá vona að þau verði heiðruð gjörningnum samkvæmt.

Þetta tiltekna kyrkju afstrympi var reist árið 1857 og endurreist að mig minnir 1964 og hefur því fengið að standa alltof alltof lengi hvort eð er og var löngu runnin út yfir seinasta söludag, hefði átt að fuðra upp fyrir löngu síðan. En nei, sumir láta sér ekki segjast og nú á sem sé að reisa hana í þriðja sinn, ef eitthvað má marka krosslafsdýrkandann og prestskrattann Þórhall Heimisson úr Hafnarfjarðarsókn, en á bloggpistli sínum segir hann að kyrkjuskrípið „muni rísa á ný með blessun Guðs (sic) og góðra manna.“

Ef svo fer, þá er bara að vona að hún fuðri sem allra fyrst aftur upp fyrir tilstilli djöfuls og góðra kvenna, sem og önnur slík undirokunarreðurtákn sem stinga líkt og glóandi járn í augu og samvisku manns víðs vegar um landið.

Málið er að svokallaðir þjónar kyrkjanna hafa vaðið um með fjöldamorðum, raðnauðgunum, raðbarnanauðgunum, ofsóknum, kvennhatri, hryðjuverkum og kúgun í 1700 ár, samt er ennþá verið að tala um þetta sem „örfá rotin epli innan kirkjunar (sic)“. Það eru 1700 ár síðan að rotnu eplin smituðu út frá sér og gegnumrýttu hvert einasta epli sem ormétið og gegnumsósa af myglu hefur slepjast niður úr trénu síðan. Líkt og kennimerki nasisma og annara ógnarafla sem reynt hafa að gera líf á þessari jörðu að hreinni hörmung fyrir allt það líf sem á henni finnst, fyrir utan kannski eigið taðgat, ætti að má út á allan hátt hvert einasta versumerki kyrkjunnar og annara skipulagðra glæpastofnanna í trúarbragðageiranum, því fyrr því betra líf fyrir okkur öll saman.

Athugasemdir

Ja ég sakna þess þá helst við

Ja ég sakna þess þá helst við kofaskriflið að hafa ekki lengur öruggan gististað á svæðinu ;)