Skip to Content

Rvk-9 Málið er Vísir að Því er Koma Skal

Enn ein fyrirtakan í máli nímenninganna sem ákærð eru í því svokallaða RVK9 máli fór fram fyrir viku síðan. Ég hef varla tölu á því lengur hversu margar þær eru orðan, og enn erum við bara að fara yfir kröfur eins verjandans um frávísun málsins og vissra málsaðilla, sökum rugls og vanhæfni. En eitthvað skrið er að færast á gang mála, þessi fyrirtaka var sú önnur á jafnmörgum vikum.

Öll umgjörð fyrirtaknanna er hreinn farsi. Það er orðið margtuggið og sannað að í fyrstu fyrirtöku voru hátt í hundrað manns viðstaddir réttarhaldið án nokkurra uppákomna, sem réttlætt geta þá ákvörðun dómara að takmarka fjölda áhorfenda og troðfylla héraðsdóm af lögruglum við eftirfarandi fyrirtökur.

Jafnframt greindi svipan frá því að löggur hefðu varað þingmenn í stjórnarráðinu við yfirvofandi uppþotum rétt fyrir aðra fyrirtöku málsins, þá fyrstu sem löggan fjölmennti á að beiðni dómara. Á sama tíma stóðu örfáar hræður á Lækjartorginu að sýna sakborningum stuðning með nærveru sinni og allt var með kyrrum kjörumm...
þar til auðvitað að ribbaldabullur berandi gengjamerki lögruglunnar troðfylltu héraðsdómsbygginguna og byrjuðu að ýta fólki til og frá á meðan þeir töldu inn í réttarsalinn. Sama hætti var haldið við þar til skipt var um dómsmálaráðherra. Össur karlinn, sem áður hefur talað fyrir frávísun málsins, hefur ekki sýnt því meiri viðleitni en þá að skipa löggunum að halda sig skammt frá héraðsdómi í stað massívu verunnar sem tíðkaðist áður. Enn situr sérsveitarrútan á sínum stað og merktir og ómerktir lögruglubílar eru á sveimu um gervallt hverfið.

Undanfarnar fyrirtökur hafa átt sér stað klukka 8.30 að morgni til. Manni stakk bros þegar það var ljóst vegna tilhugsuninnar um stereótýpísku myndina af anarkistum sem næturhröfnum og hvort ætlunin væri að halda því elementinu í burtu með svo andskoti kristilegri tímasetningu. Virkar því miður alltof oft á mig, er sjaldan vakandi klukkan hálfníu að morgni nema að hafa verið vakandi alla nóttina fram að því.
En burtséð frá öllum kaldhæðnislegum vangaveltum, þá þýðir þetta að málsmeðferðinni er lokið áður en héraðsdómu á að opna, og þannig hægt að takmarka fjöldann inn í húsið og þannig hindra að tilvonandi áhorfendum sem sé meinaður aðgangur að réttarsalnum, geti truflað ró dómarans með hávaða og kröfuköllum.

En aftur að alvöru málsins, þá veldur þessi lágmörkun vitna því að eingöngu nánustu stuðningsmenn og fjölskyldur sakborninga fá aðgang að réttarsalnum til að bera málinu vitni seinna meir. Vegna tengsla sinna við skaborninga munu þau verða stimpluð hlutdræg þegar þau tjá sig um það sem fyrir augu bar í réttarsalnum og lögrugluríkið stendur enn upprétt í skrautbúningi réttarríkis, gjóandi blóðþyrstum augunum eftir næsta fórnarlambi.

Þetta hef ég sjálfur upplifað þegar ég hef sagt fólki frá því hvernig dómarinn hefur borið sig og hagað sér í þeim fyrirtökum sem ég hef vermt áhorfendabekk á. “Þetta eru jú vinir þínir sem eru ákærðir er það ekki?” er algengustu viðbrögðin, sönnun þess að hún er enn allsráðandi hin algjöra afneitun þess að dómari í íslenska réttarkerfinu gæti verið hlutdrægur. Það er jú satt að ég á vingott við sum ákærðu, önnur þeirra þekki ég alls ekki neitt. En það hefur engin áhrif á stuðning minn við þau og þá óréttlætistilfinningu sem er að gera mig vitinu fjær í hvert sinn sem ég hugsa um málið. Ég styð þau öll jafnt, óháð vinskap, því ákærurnar eru út í hött. Eina fólkið sem gerði atlögu að alþingi í desember 2008 voru starfsmenn þess, og þá meina ég hvern einn og einasta starfsmann, nema kannski ræstitæknana.

En aftur að málsmeðferðinni. Hver sem vildi ætti að hafa aðgang að þessu réttarhaldi, einmitt til að koma í veg fyrir ógildun “of náinna” vitnisburða. Aftur á móti er ekki víst að þessari yfirdráttslausu hegðun dómarans væri flaggað jafn augljóslega væri allur heimurinn að fylgjast með. En það er virkilega viðbjóðslegt að sjá hvað hann augljóslega andvarpar og mæðir, ranghvolfir augunum og virðist vera langt í burt á einhverju skemmtilegu sveppatrippi á meðan verjendurnir, aðallega Ragnar þó, taka til máls. Stígur ákæruvaldið fram er sjónin önnur. Þá situr hann skyndilega beinn í baki, með spenntan og ákveðinn svip, eða svo ákveðinn sem hann Pési nú getur framkallað.

Óendanlega margt er hægt að fetta fingur út í mestalla umfjöllun sem málið hefur fengið. Flestir fjölmiðlar, sem í öðrum málum tala um sakborninga og meint brotafólk þar til sekt er sönnuð, gleyma öllu um slík prinsip strax og nímenningana ber á góma, því þau skal kalla "þau sem gerðu árás á Alþingi", ofbeldisfólk og þar fram eftir götunum. Fjölmiðlarnir og álitsgjafarnir hafa sýnt sitt sanna andlit enn eina ferðina, en samt heyrir og sér maður flesta stuðningsmenn nímenninganna yppa öxlum og segja að það þurfi ekki að hafa áhyggjur, það eigi aldrei eftir að koma sakfelling út úr þessu máli.

Auðvitað þarf að hafa áhyggjur. Í fyrsta lagi af því að langflestir víðlesnu álitsgjafar hérlendis leggja sig fram við að dæma nímenningana fyrirfram, nokkuð sem mun draga dilk í lífi þeirra, óháð útkomu dómsins, sennilegast það sem þau eiga ólifað. Að enginn af þessum álitsgjöfum skuli vera að setja spurningarmerki við þetta algjöra lögregluríki sem haslað hefur um sig er meiriháttar áhyggjuefni og á eftir að draga stóran dilk á eftir sér sem mun sennilegast bitna á öllum sem hafa skoðanir. Enn meira áhyggjuefni er svo hin óþolandi innræktaða þrælhlýðni og hjarðhegðun þeirra sem þessa eldfjallaeyju búa. Að enginn skuli vera að setja spurningarmerki við þessa álitsgjafa og skipta þeim út er í raun alvarlegra en þöggun miðlanna.

Í öðru lagi, þá væri ekki verið að keyra þetta mál, sérstaklega með þeim hætti sem allt leikritið hefur verið sett upp með, ef ekki væri ætlun ríkisvaldsins að fá fram sakfellingu. Eitthvað kveður á um það í lögum að ríkissaksóknari gefi ekki út ákærur nema að talið sé að sakfelling náist. Hér er ætlunin að kveða niður framtíðaráhorf allra þeirra sem hugsað hafa sér einhvers konar andóf og uppsteyt gegn ríkjandi kerfi. Það er ekki lengur í lagi að fara á þingpalla og framkvæma gjörninga þegar ríkisstjórnin skítur upp yfir allt bakið á sér, þrátt fyrir áratugahefð fyrir slíkum uppátækjum hér á landi án nokkura réttarhalda af þessu tagi.

Einnig er lögruglan nú farin að handtaka fólk í mótmælastöðum á almenningseign með tilvísun í fordæmi frá máli sem höfðað var á hendur Lalla sjúkraliða eftir mótmælastöðu hans við höfuðstöðvar bandarísku heimsveldisklíkunnar. Á sama tíma og bekkur, gangstéttarhella og ég veit ekki hvað er sett upp við Langholtsveginn til minningar um Helga Hós, þar sem hann stóð seinustu æviár sín með mótmælaskiltin sín, þá er nú ekki lengur í lagi að standa á almenningseign með kröfuskilti, allavega ekki þar sem þeir sem skiltið beinist gegn eiga möguleika á að sjá það.

Framgangur yfirvaldsins í garð fólks sem mótmælir spillingu og óréttlæti, náttúruspjöllum og mannréttindabrotum og hverju sem er öðru fer sífellt harðnandi. Að þetta mál hafi yfir höfuð verið höfðað gerir lítið annað en að sanna á hvaða stig lögrugluríkið er komið. Með þessu áframhaldi líður ekki á löngu þar til fólk verður handtekið og hneppt í þrælkunarvinnu á vegum fangelsismálastofnunnar fyrir það eitt að hugsa eitthvað sem ekki fellur valdhöfum í geð, eða að krossa í vitlausan reit á kjörseðlinum. Annað eins hefur gerst úti í hinum stóra heimi og um þessar mundir eru kjöraðstæður fyrir slíkar ofsóknir í mjög góðum jarðvegi hér á landi.

Verði ykkur fucking að því.

Athugasemdir

simple sorts of tiffany

simple sorts of tiffany sterling silver necklaces will be worn at the wedding ceremony, however are the one bit of necklaces that may be put on for the purpose of The traditional NFL machines spot is actually sewn absolutely any circumstance. Equally, dependant upon the size and even multitude styles involved with the excellent products produced, despite the fact that for the material how the men as well as content articles are made of, true stud New York Giants Hats can be extremely reasonable. In contrast, male silver tiffany pearl earrings is additionally the type of gift that is The amazing NFL equipment repair is undoubtedly pa flawlessly to do this kind of party. Should you wish to modify for each and every with the basic, various New Orleans Saints Hats retailers deliver specific It is usually important that will prevent thinking which will fit your bridesmaids person stars. For this reason, every one lady happen to be given to the great cheap National football league tops to choose from. It's no surprise that vogue Oakland Raiders Hats can be most in-demand across the globe becasue it is New York Jets Hats high excellent and licensed worth.