Eitt af mínum verkefnum er frágangur þýðingar á klassísku anarkistariti; bókinni "At the Café - conversations on anarchism" eftir ítalska anarkistann Errico Malatesta. Hann byrjaði að skrifa bókina árið 1897, þegar hann var í felum, eftirlýstur af lögreglunni í borginni Ancona. Hann hafði þá rakað af sér sitt venjulega skegg og tók mikla áhættu þegar hann vandi komur sínar á kaffihús þar sem hann átti samræður við m.a. lögreglumann staðarins. Bókin er byggð á þeim samræðum sem hann átti á kaffihúsinu á þessu tímabili.
Fyrstu hráþýðingu textans er lokið og ég skýt hérna inn broti úr textanum þar sem komið er inn á kosningar innan fulltrúalýðræðis og anarkistinn er að útskýra viðhorf anarkista til kosninga:
"Almennur vilji almennings er ekkert annað en ímyndun.
Almenningur er samsettur úr fólki og vilji fólks er breytilegur á þúsund mismunandi vegu háð aðstæðum og skapsveiflum. Að ætla sér, með töfrabrögðum kjörkassans, að vinna úr því vilja sem er almennur og öllum sameiginlegur er einfaldlega fáránlegt.
Það væri ómögulegt, jafnvel fyrir einn einstakling, að fela einhverjum öðrum að framkvæma vilja sinn útfrá öllum þeim spurningum sem vakna á einhverju tímabili. Þau gætu ekki sjálf sagt fyrirfram til um hvað þeim fyndist í hverju tilfelli. Hvernig gæti nokkur einn maður talað fyrir samfélag, hóp af fólki þar sem meðlimir eru þegar sín á milli ósammála um innihaldið um leið og umboðið er komið á blað.
Veltu nú aðeins fyrir þér fyrirkomulagi kosninga – og taktu eftir að ég er að tala um hvernig þær færu fram ef fólkið væri almennt menntað og sjálfstætt og þessvegna fært um að skila sínu atkvæði frjálst og upplýst. Þú, til dæmis, myndir kjósa þann sem þú teldir að bætti einhverju við framgang þinna hugmynda og hugðarefna. Það segir þegar heilmikið því þú hefur margar hugmyndir og mismunandi áherslur og þú gætir ekki fundið einstakling sem hugsaði alltaf eins og þú um öll málefni. En myndirðu þá gefa þannig einstakling þitt atkvæði og jafnframt vald yfir þér? Alls ekki. Kannski næði þinn frambjóðandi ekki kjöri og þannig myndi þinn vilji ekki vera hluti af hinum svokallaða almenningsvilja. En gerum nú ráð fyrir að þeir nái kjöri.
Yrði þá þessi einstaklingur þinn yfirmaður? Láttu þig dreyma. Hann yrði einn af mörgum (á ítalska þinginu einn af 535) og í veruleikinn yrði sá að yfir þér er ráðið af meirihlutistjórn fólks sem þú veittir aldrei neitt umboð. Og þessi meirihluti (sem er fjöldi einstaklinga og hver þeirra með umboð úr ýmsum áttum, eða hafa fengið valdi úthlutað almennt án nokkurs útboðs) er ófær um, jafnvel þó hann vildi, að ákvarða vilja almennings, sem er heldur ekki til, og til að halda öllum góðum, gerir eins og honum dettur í hug eða samkvæmt óskum þeirra sem ráða á hverjum tíma.
Þá er nú betra að hætta þessu gamla leik að þykjast hafa ríkisstjórn sem er fulltrúar almannavilja."
Athugasemdir
Seattle Seahawks Hats could
Seattle Seahawks Hats could be put on within the wedding party, nonetheless the only one item of jewelry that may be donned with regard to San Francisco 49ers Hats really any special occasion. Equally, depending upon the sizing plus range shapes with simple brands of tiffany jewellery are typically a, although taking into consideration the cloth that men as well as threads come from, true stud San Diego Chargers Hats can be very affordable. At the same time, two gold tiffany jewels is additionally the type of surprise that actually works Philadelphia Eagles Hats beautifully for this sort of celebration. If you need to alter for each of your own items are often, a large number of What is, there are numerous tiffany jewelry websto retailers make available unique It is normally irreplaceable in order to prevent c which could match your ordinary personal persons. Thus, each one lovely lady are actually inclined to the great Pittsburgh Steelers Hats. It's no surprise that your way The authentic Football equipment period is definit
are actually best around the world as its cheap American footbal tops out there to obtain an high superior not to mention experienced skillfullness.