Gerði mér ferð að Mæðrastyrksnefnd í dag með matvæli héðan og þaðan og hugðist bjóða fólki að nýta þau að vild. Securitas stóðu tvö fyrir utan og gættu að umferð. Ég spurði þau hvort ekki væri í lagi að skilja þetta eftir upp við vegg þar sem fólk hefði að því aðgang, þau báðu mig þá að spyrja leyfis hjá konunni í dyrunum.